Púúhhee Eðð!!Vigdís Erla Rafnsdóttir
Já í dag var ég heima með Fridu yngstu stelpuna....Hún hafði víst ælt þrisvar um nóttina og var grátandi þegar ég vaknaði. (vara við þetta er gróft)Ég er svona að jafna mig á flensuni en var að hósta upp slími þegar barnið kom hliðiná mér við klósettið og ældi á gólfið fyrir framan mig (eiginlega á mig) og ég lyfti grátandi barninu upp, og aftur yfir allt klósettið og sjálfa sig, púhe eð.
Jújú hún var svosem hress eftir á að hjálpa mér að þrýfa og klappa fyrir mér.
síminn hringdi kanski svona klukkutíma eftir, ég hleyp í símann með barnið í fanginu og svar í símann, ég ég ekki þessa svaka þrusu yfir mig alla (náði nú að bjarga símanum) og aftur enn meira yfir mig. Ég dreyf mig úr öllum fötunum og barnið líka og ákvað að renna í bað. Um leið og barnið vr komin með tærnar í baðið sá ég eithvað gullt blandast við það og dreyf barnið og rétt náði á koppinn...Púhee, vorum í baði í dálitla stund voða gaman....en nei KÚKAR ekki barnið í baðið og ég um leið uppúr og í sturtu.
Ég þurkaði mér og þreif upp bæði kúk og ælu og fannst ég ekkert hreinni eftir bað og sturtu. Gaf svöngu barni að borða eithvað virkilega illa lyktandi jógúrt, egg, pínu gúrkubita já og eithvað annað. Ég sá MJÖG mikið eftir að hafa gefið barninu þetta illa lyktandi jógúrt því ekki var betra þegar lyktin var búin að magnast um helming á brjóstinu á mér og eða yfir mig ALLA og á rúmmið og á gólfið og á gólfteppið! PÚÚHHeee eððð!!
Núna er ég aftur á móti búin að fara í langa og góða sturtu og skrúbbaði mig vel og vandlega eftir virkilega skítugan dag! ég sem hef ekki ælt mikið meira en þetta yfir alla mína ævi og var greynilega gott skotmark í dag.
Fyrsti dagurinn ein heima með veikt barn......hvernig verður árið?
Planið yfir árið!!Vigdís Erla Rafnsdóttir
Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef planað heilt ár í farmm í tímann og ég hef heldur aldrei verið jafn spennt fyrir svona langan tíma!
Planið hljómar svona:
eftir 2 vikur fer ég að hitta nýju filipínsku vinkonu mína í kaupmannahöfn
í næsta mánuði fer ég til Noregs með minni yndislegu host fjölskyldu
Æfa fyrir leikrit sem ég er ekki enn komin með hlutverk í og sína það
1.Apríl kem ég í heimsókn heim :-D jeijj
5. júní fer ég til Svíþjóðar að sjá Pippí og alla hina
Eftir fyrstu vikuna í Júlí fer ég með Sessý og Helga (kanki fleirum) til Þýskalands, Hollands, Belgíum, París í Frakklandi og vonandi London :D (þetta er planið eins og það er í dag) !!!!!!!
Og fer öruglega aftur til Noregs
Og svo heim vonandi fyrir jól
Svo ætla ég að reyna að hitta Kötu og Gumma aftur (var mjög gaman hjá þeim síðast)
Þar á milli í sumar ætla ég að vera í lególandi :-)
Ætlaði allavega að láta vita að mér líður alveg rosalega vel og hlakkar alveg óendanlega mikið til alls í þessu stóra plani mínu og eftir árið verð ég búin að koma við á mikið fleiri löndum en ég hef gert á minni bráðum átján ára ævi :-D
Skellti mér í afmæli í gær!Vigdís Erla Rafnsdóttir
Ég er búin að kynnast einni mjög yndælli og sætri stelpu frá Philipíneyjum (22 ára) í Dönskukennslunni, og hún bauð mér í afmælispartý hjá kærastanum sínum :)........ég mæti á staðinn hress og kát en mér til mikillar undrunar var nú fólkið þarna aðeins í eldrikanntinum.....var ég þá ekki bara stödd í fimmtugsafmæli!!!! sem sagt greiið litla stelpan sem er 22 ára er með fimmtugum gaur sem gæti svo auðveldlega verið pabbi hennar og meria en það....hún gæti sem sagt verið 30 ára og samt verið dóttir hans!! ég fékk nett sjokk þegar ég heyrði hvað hann var gamall.Ég kís að fara inn í eldhús að hjálpa litlu dömunum sem voru að elda Philipínskan mat (sem smakkaðist bara mjög vel þrátt fyrir mjög slæma lykt) og þar kynntist ég annarri Philipínskri stelpu sem er 23 ára og ég stefni á að fara og heimsækja hana til Kaupmannahafnar :D
En þetta var svosem ágætt þarna......ég var til klukkann eitt því ég nennti engann veginn að hjóla heim. En það var náttúrulega bara verra þá því ég var ennþá þreyttari og það lá við að ég sofnaði á hjólinu sem ég þurfti að hjóla á í 30 mín!!
Danir nota Danska fánann við hvert tækifæri.....stínga þeim í blómabeðin og seívétturnar voru með honum og meira að segja blaðið sem við fengum með texta af lagi.
En annars þá hef ég það bara mjög gott hérna í DK :).....fór einnig í leðurblökusafarí í gær sem var bara mjög spennó en sáum enga vakandi þar sem þær eru flestar í vetrardvala
PicwikclubbennVigdís Erla Rafnsdóttir
Á föstudaginn fór ég og hitti leiklistaklúbbinn sem ég verð í og við setjum upp leikritið Picwikklubben.
Þegar ég hitti konuna sem stjórnar var hún klædd í þvílíkan kjól eins og konurnar voru í gamladaga og sagði að það allir ættu að vera dressaðir upp og spurði mig hvort ég vildi ekki koma með henni og athuga hvort við findum eithvað handa mér...jújú þetta var pínu spennandi og ég fór með henni og hugsaði með mér hvað er ég búin að koma mér í þegar ég sá hitt fólkið í bílnum ekki dressað upp. Fórum inn í eithvað hús sem líktist helst hlöðu og löbbuðum upp stiga upp á loft þar sem þau geima fullt af búningum. Konan síndi mér slá af kjólum og mér leist ekkert á blikuna....hún tók framm einn kjól sem líktist helst stórri gardínu frá 1700 og ég mátaði.....jújú hann smellpassar, nema kanski aðeins of síður....hún var ekki lengi að redda því og kom með tvo járnhringi sem voru festir með bandi og tegju efst og smellti mér í þetta. Þannig nú leit ég út eins og konurnar í eldgamladaga með hatt og alles, og gerði hvað ég gat til að springa ekki úr hlátri og vonaðist alveg innilega að ég væri ekki sú eina sem myndi líta út eins og gardína.
Svo þegar komið var að því að setjast inn í bílinn var meira en að segja það þegar jarnhringirnir voru breiðari en hurðin.....já mjög skemtilegt að hitta fólk svona í fyrsta sinn, ég hló samt sem áður og böglaðist við að reyna að koma mér úr þessum hringjum með því að lifta pilsinu upp sem tók sinn tíma (vegna stærðar) og úr hringjunum og skellti þeim inn í bílinn og átti í erfiðleikum með að koma öllum kjólnum inn í bílinn meðan ég skellti hurðinni og sagði "hej jeg heder Vigdís" og sá að stelpan hliðiná mér var í gallabuxum :)
Á leiðinni leið mér eins og ég væri stödd í hrillingsmynd það vantaði bara hestakerruna....ég í þessum kjól með fólki sem ég þekkti ekki neitt á leiðinni útá land í niðarmirkri og sá ekkert annað en skuggann af trjánum. En jú það voru svo allir dressaðir svona upp (nema minn kjólll var kanski svona helmingi stærri en allir hinir) svaka stemning drukkum te og fengum að borða í svona gamaldagshúsi.
Í þessum leiklistahóp mátti sjá ömmur og afa (ef ekki langömmur) pabbar og mömmur og ungmenni á aldri við mig og aðeins eldri. Mér var tekið mjög vel og allt þetta fólk mjög skemmtilegt.
Ég var að spjalla við eina ömmuna og hún sagði við mig "ég er kanski búin að drekka allt of mikið af þessu víni" einum of findið. Þannig núna er ég að fara að undirbúa á fullu leikrit sem verður sennilega sýnt í byrjun sumars með fullt af skemmtilegu fólki :)
Ég bætti við einni mynd af mér í kjólnum í myndaalbúm
Smjör!Vigdís Erla Rafnsdóttir
Já í dag við kvöldmatinn horfði ég á litla ungann (Frida) horfa á smjörið á borðinu og segja umm uuu uu (þýðing: ég vil fá/ég verð að fá) og mamman og pabbinn hotfa á hana og eru að spá í hvað henni langar í: viltu þett? Ungi: um um. Og þau aftur: en þetta? Ungi: um um, umm uuuu u og þau: þetta og bentu á smjörið. Já svo sannalega þetta yppti öxlunum með höndunum og brosti með tilhlökkunar svip. Þau: nei ekki smjör við þetta.Já ég hef séð barnið byðja um smjör síðustu tvo daga.... þar sem ég var að gefa henni hádegismat fyrir þrem dögum og gaf henni smjörklípu útá kartöflurnar sem hún fékk, en náði því miður ekki að blanda því saman því hún var komin með munnfylli af hreinu smjöru upp í munn og ofan í maga. Eftir king ofan í maga var sagt umm uuu uu.... já meira smjör en í þetta skipti var ég fljót að blanda saman meðan það var hvartað.
En við matarborðið í dag hélt ég niðri hlátrinum og ætla sko ekki að segja að ég hafi leift barninu að borða hreint smjör.
Ég bí til kartöflumús!Vigdís Erla Rafnsdóttir
Ég var beðin um að gera kartöflumús meðan mamman reyndi að svæfa sú ynsgtu.Ég hrærði kartöflurnar í mauk setti smá smjör, mjólk, lítið salt og dass af sykri....kasnki aðeins of mikið en var samt að mínu mati mjög góð kartöflumús bara aðeins of sæt á bragðið. Við matarborðið skamtar mamman sér stórann skammt af kartöflumús á diskin sinn, ég fæ mér líka og byrja að borða, sé að sú minsta borðar þetta með bestu list....en svo eftir smá stund hrillir mamman sig og sagði: þú veist að stóri dallurinn er sykur....ekki salt. ég í sakleysi mínu segi: jú auðvitað veit ég það. og hún aftur: settirðu sykur útí kartöflumúsina?
Sem betur fer hlóu þau nú bara að þessu og Thomasi fannst þetta svo fyndið að hann er viss um að ég muni aldrei gleyma þessu með kartöflumúsina.
Setur maður ekki sykur útí kartöflumús?
Allir veikir!!Vigdís Erla Rafnsdóttir
Yfirleitt vakna krakkarnir klukkan 06:00 á morgnanna en í dag svaf litla Ingvild til klukkan 13:30 og mamman með, báðar mjög veikar, ég passaði hina snáðana á meðan. Sú yngsta grét í hvert skipti sem hún sá mömmu sína og grét í svona 10-15 mínútur eftir að hún var farin að sofa aftur. En þar á milli vorum við að hlæja, knúsast, kítlast og gráta. Klukkan 13:30 ákvað mamman að fara með Ingvild til læknis og eru þær búnar að vera uppá spítala síðan.Í gærkvöldi voru öll börnin og Hilde með 39 stiga hita en sem betur fer var í lagi með Frídu og Thomas í dag.
"Dúið"Vigdís Erla Rafnsdóttir
Ég labbaði inn og mér var strax starsýnt á þrjá litla stráka fyrir framan mig. Ég tók fyrst eftir þeim í miðjunni, ég horfði á efsta hluta líkamans skreittur með ljósum strípum og hvert eitt og einasta hár aðskilið frá hverju öðru....öruglelga klukkutíma vinna, ég leit aðeins neðar og sá þröngan bláan jakkann sem sýndi vel kversu massaður litli strákurinn var við þröngu svörtu buxurnar og ákvað að kíkja á hina litlu vinina og sá að þeir voru allir þrír með nákvæmlega sömu klippinguna allir í þröngum jakka eða peysu og þröngum buxum, soldið sætir en... svona þrem árum yngri. Svo hélt ég inn í verslunarmiðstöðina með bros á vör því það voru útsölur og ég ætlaði mér að eyða nokkrum krónum með minningu um síðasta ár sem "dúið" var sko deffenetlí málið og þú varst ekki töff nema vera með tonn af vaxi í hárinu og þannig er það sko hér, fullt af sætum strákum með dú.
Ég er sátt með að búa í Danmörku og fólkið er virkilega vingjarnlegt og allar búðarkonurnar töluðu meira en þurfti og voru mjög vingjarnlegar....hér í götunni minni er manni vinkað þegar maður keyrir úr innkeyrslunni og allir eru vinir
Ný kennitala!!Vigdís Erla Rafnsdóttir
Ég hélt að það væri ekki hægt að fá nýja kennitölu en í dag fékk ég nýja svo núna er ég 050491-3694 í stað -2779 svo ég gæti fengið bankareikning og frítt til læknis.
Hér fáið þið smá hugmynd um hvernig fjölskyldan er:
Thomas (Pabbi): Hefur verið Au-pair aður. Alltaf mjög skemmtilegur og þægilegur, alls ekki neitt strangur.
Hilde Marie (Mamma): Mjög góð, mjög mikil skipuleggjari og með allt á hreynu.
Thor Andreas (5 ára): Fyrsta sinn sem ég sá hann var hann bara í fílu því við fengum Mc-donalds en er annars búinn að vera mjög skemmtilegur og er mjög stolltur með nýju stóru systur sína.
Ingvild (3 og 1/2): Brosti allann tímann í bílnum á leiðinni heim frá flugvellinum og talaði stanslaust (3-4 klukkutímar) og er mjög skemmtileg og talar um mig sem stóru systir.
Frida Maria (1 og 1/2): Allgjört krútt og virkilega skemmtileg, hún knúsar mikið og er alltaf hlæjandi og brosandi. Hún kann bara að segja 3-4 orð en skilur sammt allt sem er verið að segja við hana og hlýðir skipunum.
Þau eru öll algjörir orkubolltar svo þetta á eftir að vera mikil vinna en samt gaman
Ég skila góðri kveðju heim til Íslands